Surface Pro 9 er öflugt 2-í-1 tæki sem sameinar kraft fartölvu og sveigjanleika spjaldtölvu. Það skartar 13 tommu snertiskjá, afar öflugum vélbúnaði og góðri rafhlöðuendingu og hentar því vel í allt milli himins og jarðar, sama hvort það sé stórt vinnuverkefni eða hámhorf upp í sófa. Við hana má tengja lyklaborð og Surface Pen teiknipenna til að fá enn þá betri upplifun og auka notkunarmöguleika enn frekar. Þetta er græjan fyrir starfsfólk nútímans, kröftuga nemendur og skapandi einstaklinga – Surface Pro 9 býður upp á einstaka fjölhæfni og frammistöðu.
Surface Pro Copilot+ er öflugasta 2-í-1 tæki sem Microsoft býður upp á og sameinar kraft fartölvu, sveigjanleika spjaldtölvu og tækniframfarir nútímans. Nýir tímar kalla á nýja nálgun og Surface Pro Copilot+ gerir notendum sínum kleift á að takast á við öll verkefni sem kunna að koma upp á. Það skartar 13 tommu snertiskjá og nú enn þá öflugri vélbúnaði og góðri rafhlöðuendingu og hentar því vel í allt milli himins og jarðar, sama hvort það sé stórt vinnuverkefni eða hámhorf upp í sófa. Við hana má tengja lyklaborð og Surface Pen teiknipenna til að fá enn þá betri upplifun og auka notkunarmöguleika enn frekar. Þetta er græjan fyrir starfsfólk nútímans, kröftuga nemendur og skapandi einstaklinga – Surface Pro Copilot+ á sér enga hliðstæður.
Surface Laptop Copilot+ er stílhrein og öflug fartölva sem er hönnuð til að þú getir fengið sem mest úr öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Nýir tímar kalla á nýja nálgun og Surface Laptop Copilot+ gerir notendum sínum kleift á að takast á við öll verkefni sem kunna að koma upp á. Hægt er að velja um bæði 13,8 tommu og 15 tommu skjá, tveimur örgjörvum, auk þess sem hún býr yfir góðri rafhlöðuendingu. Surface Laptop Copilot+ keyrir nú Copilot+, gervigreinaraðstoð Microsoft sem hjálpar þér að ná enn þá lengra í öllu því sem þú tekur þér fyrir hendur. Tölvan er stílhrein og nútímaleg en um leið létt og því auðvelt að ferðast með hana. Fullkomin fyrir nútíma starfsfólk, nemendur og alla á ferðinni, Surface Laptop Copilot+ er áreiðanleg og flott.