Surface aukahlutir

Sía
Skoða í Net Listi
Raða eftir
Birta á síðu

Surface Earbuds

Surface Earbuds eru úrvals þráðlausir eyrnatappar frá Microsoft. Þeir bjóða upp á afar þægilega og örugga hönnun með leiðandi snertistýringum fyrir tónlist, símtöl og fleira. Upplifðu flott hljómgæði og spilaðu Spotify samstundis úr Android símanum þínum, einfaldlega með því að snerta annan hvorn tappann. Njóttu þess að hlusta allan daginn með allt að 8 klukkustunda rafhlöðuendingu í töppunum og auka 16 klukkustundir í þráðlausu hleðsluboxi. Strjúktu, snertu og pikkaðu á tappana til að stilla hljóðstyrk, taka símtöl, hafa umsjón með dagatalinu, svara tölvupósti í Outlook og stýra kynningum í PowerPoint.

39.900 kr m/vsk

Surface Headphones 2

Surface Headphones 2 eru mætt! Þráðlaus, þægileg og flott heyrnatól frá Microsoft. Upplifðu símtölin þín og tónlistina sem aldrei fyrr með Omnisonic hljóði og eyddu út bakgrunnshljóðum þegar þú vilt að einbeita þér eða þarft frið. Snúðu hringjum utan á heyrnatólunum til að stilla hljóðstyrk og hve mikil bakgrunnshljóð heyrast. Háþróaðir hljóðnemar tryggja að það heyrist hátt og skýrt í þér, hvort sem þú ert í símtali eða á fjarfundi. Heyrnatólin eru með allt að 20 klukkustunda rafhlöðuendingu og eru með hraðhleðslu þannig að þú nærð fullri hleðslu á innan við 2 klukkustundum. Að auki eru heyrnatólin búin leiðandi snertistýringum fyrir tónlist, símtöl og fleira. Strjúktu, snertu og pikkaðu til að stöðva eða spila tónlist, skipta um lag, svara og ljúka símtölum og margt fleira. Spotify hefur sjaldan hljómað svona vel!

49.900 kr m/vsk

Surface Dock 2

Keyrðu alla skrifstofuna á Surface tölvunni þinni með því að tengja hana við Surface Dock 2. Með dokkunni getur þú tengst tveimur 4K skjám, verið með beinttengt net og hljóð ásamt því að vera með fjögur USB tengi.

49.900 kr m/vsk

Surface Pro X skrifborð m/ penna

Skrifborð fyrir Surface Pro X með lyklaborði, stórum músarfleti og hleðslustöð fyrir penna. Breyttu úr spjaldtölvu yfir í fartölvu þegar þér hentar og njóttu þess að skrifa á þægilegt lyklaborð. Skrifborðið er einnig fáanleg úr rússkinn sem gerir yfirborðið mýkra og hlýlegra.

49.900 kr m/vsk
Sía eftir
Lágmark: 9.900 kr Til: 49.900 kr
ISK9900 ISK49900
  • Svartur
  • Grár